Rán um hábjartan dag!Drífa Þorkelsdóttir
Er ekki verið að grínast með verð á skólabókum! Það liggur við að maður þurfi að selja hönd og fót til að hafa efni á að kaupa þetta, og svo fær maður skít og kanil fyrir 4 mánaðar gamlar bækur sem sér ekki á...pirrrpirrr.
En nóg um það;)
Ég, Helena, Edda og Björk skelltum okkur í bæinn í gær í bókakaupaleiðangur. Enduðum á því að fara í alla skiptibókamarkaði bæði til að geta skilað og kaupa bækur. Sumstaðar var ekki hægt að skila þessari og ekki hægt að kaupa hina og jaríjaríjarí... Náðum þó að kaupa allar bækur nema 1 stk.
Þannig ef ÞÚ átt bókina Of mice and men þá máttu láta mig vita:)
Ég fór í morgun upp í skóla og þar fengum við stundatöfluna afhenta, mér líst bara nokkuð vel á þessa önn. Væri reyndar til í að vera í fleiri einingum. Skellti mér svo á kaffihús með Helenu og Eddu og horfði á þær drekka kaffið sitt:) Mig langar svo að geta drukkið kaffi:( Það er svo fullorðins:p

framhaldDrífa Þorkelsdóttir
September: Skóli, skóli, skóli. Gat ekki hugsað um neitt annað en að vera í skóla:)Oktober: Steinunn mín hélt sína fyrstu myndlistasýningu, frábær sýning. Skellti mér á sauðamessu að reka sauði og horfa á skemmtiatriði...stelpudjamm um kvöldið.
Nóvember: Fór aðallega í skóla og jólaundirbúning:) Ofurhetjuparty hjá Silju og Pálma:D
Desember: For á frábæra aðventu tónleika með Bubba.
2009Drífa Þorkelsdóttir
Það er komið árið 2009! Eigum við að ræða það eitthvað? Litli drengurinn minn að verða sex ára og ég að verða 18;)Ég var að fá einkunnirnar mínar í dag fyrir haust önn:) Er bara nok sátt með þær sko. ÉG fékk...10 í stæ, 9 í ísl, 9 í dönsku, 7 í ensku og 6 í félagsfræði.
Verður maður ekki að gera smá annál fyrir árið 2008, þó svo það hafi nú ekki borið neitt merkilegt í skauti sér:)
Janúar: Auðvitað besti mánuður ársins. Stubburinn varð 5 ára og bauð vinum sínum af leikskólanum í Pizzuparty. Ég varð 25 ára og bauð stelpunum og Einari;) í annarskonar party:)
Febrúar: Fórum á olís árshátíð, byrjuðum heima hjá Steina og Kristínu að sötra og brunuðum suður með stulla í mat og fínerí. Flutti frá ma og pa í litla kósí íbúð.
Mars: Skeði lítið í mars, bara verið að dunda sér við að koma sér fyrir í kotinu. Smakkaði vodka í fyrsta skipti í 8 ár og já...við skulum bara ekki ræða það meir:)
Apríl: Ég, steinunn, Einar og Viktor fórum yfir helgi í sumarbústað upp í Munaðarnesi....þvílík leti og sæla:) Á laugardagskvöldinu hélt Einar svo upp á afmælið sitt í bústaðnum, rosa gaman:)
Maí: Múttan mín útskrifaðist úr mætti kvenna frá Bifröst. Fór í leikhús á Laddi sextugur, snilldarsýning.
Júní: Fór með Arnóri suður og við heimsóttum Önnu og stelpurnar og skelltum okkur í keilu og út að borða. Björgunarsveitinn stóð fyrir frábærum degi hérna niðrá bryggju, mikið í boði fyrir krakkana og bara gaman.
Júlí: Þá var legið í sólbaði hálfu og heilu dagana og sundlaugarnar stundaðar af kappi:) Ég og Steinnunn fórum í stelpuferð. Fórum og tjölduðum á selfossi og skoðuðum fullt þar í kring og ekki í kring:p Frábær ferð í alla staði!
Ágúst: Byrjaði í skóla:)
Og eftir það gerðist ekkert:p Nenni ekki að blogga meira...kemur kanski framhald seinna.
Drífa Þorkelsdóttir
Gleðileg jól til ykkar allra...Eigiði góða hátíð ljóss og friðar í faðmi fjölskydu og vina:)
:DDrífa Þorkelsdóttir
Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.
Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.
Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.
Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur: þarf lítið að skeina).
Long John Silver: Svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...
bleDrífa Þorkelsdóttir
Viljiði vera róleg á commentunum!! Ekki allir í einu!Allt í gúddí fréttum hérna. Búið að vera nóg að gera bæði í skólanum og skemmtanabransanum

Núna um helgina voru nátturlega réttir, það sem ég var grútþunn voða gaman eða þannig, það var nefnilega þrítugs afmæli hjá Evu vinkonu á laugardagskvöldið og bauð hún upp á ansi lúmska bollu
Auðvitað var svo skellt sér að vinakaffi eftir afmælið og það var rosalega gaman. Helgina fyrir þessa kíkti Silja til mín í hvítvín og Sunna með henni og eftir mikinn kjaftagang og fliss var farið eins og svo oft áður á vinakaffi
Skólinn gegnur voða vel, eða ég veit ekki betur
Mér finnst ég alla vegana ganga fínt. Kemur í ljós í næstu viku hvort ég hafi rétt fyrir mér eður ei, en þá er fyrsta varðan og við fáum að vita svona hvar við stöndum í náminu. Ég er bara búin að fá einkunn fyrir eitt verkefni og fékk bara 7, var ekki nóg og sátt, en átti það alveg skilið, vissi ekkert hvað ég var að gera. Maður er liggur við að læra hlutina upp á nýtt bara, ekki man ég málfræðina í ensku og dönsku síðan ég var í grunnskóla, já og varla íslensku málfræðina ef út í það er farið.
úúú þarf að rjúka...
Kommentiði nú svona til tilbreytingar.
Sumarið búið...Drífa Þorkelsdóttir
Jæja þá er enn eitt sumarið búið og er bara mjög sátt með líðandi sumar. Veðrið er búið að vera frábært og ég er búin að vera dugleg að sleikja sólina:)Við Steinunn fórum í extra stutt road trip. Við fengum alveg geggjað veður. Við keyrðum Hvalfjörðin og stoppuðum hér og þar og skoðuðum okkur um, fórum á Þingvelli og löbbuðum bókstaflega af okkur fæturnar þar. Mæli með því að reyna ekki að vera pæja þegar þið farið um Þingvelli og vera í ALMENNILEGUM skófatnaði!!! Eftir að hafa verslað kökusneið fyrir 900 kr og pepsi max í gleri fyrir 390 krónur á hótelinu á Þingvöllum héldum við ferð okkar áfram. Enduðum á Selfossi þar sem við ákváðum að tjalda, notuðum svo restina af deginum til að sleikja sólina og kaupa nýja ljóta skó á þreyttu bólgnu fæturnar okkar:) Þegar það fór að líða að háttatíma kom babb í bátinn, við vorum ekki með neina pumpu til að blása í dýnuna, og engin með pumpu á tjaldstæðinu. Eftir að hafa farið í allar búðir á Selfossi fundum við eina pumpu á N1, á 5999 kr. og ég neyddist til að kaupa hana því ekki vildi ég sofa á jörðinni
Daginn eftir fórum við á Eyrabakka og Stokkseyri. Á Stokkseyri skelltum við okkur á kajak. Ég var eins og rúllupylsa þegar ég var komin í kajaksátfittið og hvarf hér um bil ofan í björgunarvestið. En gaman engu að síður þó ég hafi verið pínu smeyk
Við komum líka við hjá Gullfoss og Geysi, fyrsta sinn sem ég kem þangað. Það var einmitt skýjað þegar við vorum hjá Gullfossi og allir túristarnir voru í flíspeysum og voða vel klæddir meðan ég og Steinunn vorum í hlýrabolum með brett upp buxurnar að kafna úr hita, enda fengum við nokkrar skrítnar augngotur

Við stórfjölskyldan, foreldrarnir, systurnar og börnin skelltum okkur norður á Akrueyi , það átti að vera viku ferð, en ég nældi mér í flensu þannig við fórum fyrr heim. Vei gaman að skemma sumarfríið fyrir öllum
Kíktum auðvitað í jólaland eins alltaf þegar maður fer norður, vorum dugleg að nota sundlaugina og rútntuðum um norðurlandið.Þó sumarið sé yndislegt er alltaf jafn gott að komast í rútínu aftur. Þó hún hafi reyndar aðeins breyst:) Ég er nefnilega sest á skólabekk aftur og það eru soldil viðbrigði:) En gaman engu að síður! Seinasta vika var soldð erfið hjá mér:) Þá byrjaði skólinn og ég svaf varla alla vikuna af stressi
Er nú hálf stressuð yfir þessu öllu saman ennþá, vona að það fari að lagast, áður en ég verð orðin að uppvakningi með magasár. Skólinn stangast á við leikskólan tvo daga í viku en ég á svo yndislega foreldra að þau ætla sækja skæruliðan þessa tvo daga í viku fyrir mig.
....Drífa Þorkelsdóttir
ég er byrjuð í skóla;)
flúbbi flobbDrífa Þorkelsdóttir
Jæja þegar maður er uppiskroppa með síður til að skoða á netinu, þá bloggar maðurSeinustu dagar hafa verið ljúfir, bongó blíða, göngutúrar og notalegheit.
Ég skellti mér í leikhús með henni móður minni, við skelltum okkur á sýninguna Laddi 60tugur+. Frábær sýning. Eina sem var mjög böggandi á þessari sýningu var fulli kallinn í sætaröðinni okkar sem stóð upp á tíu mín fresti til að pissa!
Það er alveg magnað hvernig Laddi getur skipt um karektara á nótæm og allir svo gjörólíkir.
Dagný sös var með strákin meðan við vorum í leikhúsi. Kíkti á "íbúðina" hennar í leiðinni. Takið eftir því að hún er btw EKKI búin að koma heimsækja mig síðan ég flutti í mína íbúð!!! og það eru 4 mánuðir síðan, þetta kallar maður svo systur sína.
Skellti mér aftur suður á Laugardaginn, fór með Önnu í Kringluna þar sem við plöntuðum krökkunum í Ævintýraland og tókum búðarölt. Keypt EKKERT
Fórum í keilu með krakkana. Ég var í seinasta sæti!!! Fórum á Pizza Hut þar sem ég borgaði hönd og fót fyrir matinn.
Í gær var svo sjómannadagurinn, Björgunarsveitinn Brák var með dagskrá niðrá bryggju í gærdag, rosa gaman. Fór með mömmu og guttan. Var aðallega í því að hlaupa á eftir barninu mínu og hindra það að hann myndi enda í sjónnum
Stubburinn minn skellti sér á rúntinn með snjóbíl og fór í bátsferð líka, sem ég btw þorði ekki í
Kitta og Diddi mættu á svæðið, mér til mikillar ánægju! Er ekki mikið fyrir að stofna til samræðana við fólk sem ég þekki varla, svona er nú gaman að vera feimin
Og ykkur að segja þá er ég ekki frá því að ég sé sólbrunnin eftir sjómannadaginn þar sem veðrið lék við okkur fyrir utan nokkrar vindkviður.
allt í læ okay beeee